
Egilshöll – Grafarvogur
Tveir fletir á frábærri staðsetningu í Grafarvogi. Skiltið er mjög nálægt veginum og nær daglega mikilli umferð á leið í Spöngina eða Egilshöll.


Sæbraut – Holtavegur
Flöturinn er staðsettur á vegg nálægt gatnamótum Sæbrautar og Holtavegs. Verslunarkjarninn í Holtagörðum er þarna steinsnar frá. Sæbrautin er ein af umferðarþyngstu götum höfuðborgarsvæðisins.



Keflavík – Njarðarbraut
Tveir fletir staðsettir á einni aðal umferðargötu Reykjanesbæjar. Fletirnir eru mjög vel sýnilegur öllum viðskiptavinum verslunarkjarnans í Krossmóa sem og ökumönnum og gangandi vegfarendum.

Vesturlandsvegur
Staðsett sunnanmegin á Vesturlandsvegi við Grafarholtsvöll Golfklúbbs Reykjavíkur, skiltið hefur tvo fleti sem snúa í sitthvora áttina. Hér er ein aðal umferðaræð höfuðborgarsvæðisins og er umferðin gríðarleg á háanna tímum dagsins.



Reykjanesbraut – Hæðasmári
Fallegur flötur á vegg bílaapóteksins við Hæðasmára í Kópavogi, steinsnar frá Smáralind. Flöturinn fangar athygli þeirra sem eru á leið suður í Garðabæ eða Hafnarfjörð. Gríðarleg umferð fer um Reykjanesbrautina á hverjum degi.

Grandi
Flötur á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Skiltið er staðsett á vegg húss Björgunarsveitarinnar Ársæls. Flöturinn er mjög áberandi og sýnilegur allri umferð þarna um svæðið.



Höfðabakki – Árbær
Tveir fletir á frábærum stað á höfuðborgarsvæðinu. Annar flöturinn fangar umferð á leið upp í Árbæ eða Breiðholt frá Ártúnsbrekku og hinn umferð frá Árbæ/Breiðholti. Þá er hann vel sýnilegur þeim sem eiga leið úr Grafarvogi um Gullinbrú.

Akureyri – Þingvallastræti
Eini stóri Led flöturinn á Akureyri. Staðsettur við KA heimilið. Mjög sýnilegur vegfarendum á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar sem eru næst umferðarþyngstu gatnamót bæjarins.



Selfoss – Ölfusá
Tvö skilti sem blasa við vegfarendum sem keyra yfir Ölfusábrú, skiltið snýr bæði að vegfarendum sem eru að keyra inn í Selfoss og einnig þeim sem eiga leið um aðal umferðargötu Selfoss. Þarna eiga leið um hvað flestir bílar á hringvegi Íslands, þjóðvegi 1.

Reykjanesbraut – Fjarðarhraun
Tveir fletir staðsettir við gatnamót Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns þar sem tugþúsundir bíla aka um daglega.
Þá blasa skiltin við vegfarendum á leið til eða frá Keflavíkurflugvelli.


